Prófíll

  • Nafn: Vala Dögg Sigurđardóttir
  • Stađur: Reykjavík
  • Hjúskaparstađa: á föstu
  • Um mig: ...bitch

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leit

No title

22. október 2007 klukkan 21:35
Vá ég er algjörlega búin að tapa þessu. Ég blogga það sjaldan að ég mundi ekki passwordið.. :S Hehe ég reyni að bæta það.. Annars finnst mér bara orðið leiðinlegt að sitja fyrir framan tölvu, og ég fæ alltaf bara hausverk og verð þreytt ef ég er klukkutíma eða lengur! Það var nú ekkert hér í gama daga.... Djóóóók!

En annars að frétta að þá er ég LOKSINS komin með íbúð til að búa í.
Og það var ekki auðvelt, ég og alli erum búin að hanga gjörsamlega á leigusíðum og eikkað shit og senda þúsund e-mail og hringja útum allan bæ. Svo var bara allt í einu hringt í mig, útaf við settum svona auglýsingu... :D Og fengum heavy fína íbúð í vesturbæ, rétt hjá mömmu Koss En þessi leigubisness er ekkert djók, við erum að tala um það að verðið er komið hjá ansi mörgum bara þúst, 2000-3000 kr fermetrinn! Sem er bara rugl!! Það er sko ekki fyrir hvern sem er að leigja...
EN.. að öðru. ásta systir min er alveg að SPRINGA úr óléttu og sömuleiðis Gunna, hans Jóa.. Og ég get ekki beðið! Svo á dóttir hennar Kollu, Birta 1 árs afmæli í dag... Og ég gaf henni svona náttföt og ógeðslega mjúkan náttslopp.. Mjúkan og auðvitað bleikan ;)
ég hlakka líka HEAVY til jólanna, þau eru bara á næsta horni.. Allstaðar farið að auglýsa jólahlaðborða og jólaskraut og ég meira að segja sá jólatré, geeeðveikt flott allt hvítt í seríum. Sumum finnst þetta oft snemmt en ég fæ bara kítl í magan og ég veit að margir eru sammála mér, jólin ERU skemmtilegur tími :D ég á eftir að fara á útopnu með jólagjafir handa fæddum og ó-fæddum frænkum hehe ;P
Vala Dögg Sigurđardóttir
3 athugasemdir

sjibbí!

29. ágúst 2007 klukkan 20:29
yub

bitches...

Saló kemur á morgunn og þá flyt ég! Jeij! Get ekki foookkin beðið eftir því :) Reikna með því að við prinsessurnar sofum í íbúðinni annað kvöld, eftir að ég er búin að þrifa og gera allt hreint, amk inni herberginu sem ég mun eiga, til að byrja með :P
Vala Dögg Sigurđardóttir
Engin athugasemd

Oh my goodlookingsucking5dollababy

15. ágúst 2007 klukkan 12:24
Ég er búin að vera í svona nostalgíu kasti! Er það ekki annars orðið? Ég fýla svo mikið að hlusta á tónlistina sem mar var að hlusta á hérna back in the days, og þá er ég ekki að meina fyrir 3-4 árum heldur þegar ég var svona 8-9 ára að blasta þúst, Spice Girls og Fugees og fleira..

Ég náttla bara mun aaaldrei hætta að hlusta á Fugees. Jafnvel væri öfga kúl að árið 2067 þegar ég dey, mun ég sennilega spila eitthvað létt og skemmtileg Fugees lag í jarðaförinni minni. Hah!
En Lauryn Hill er náttla bara snilldar tónlistarmaður. Hún er svo.. Engri annari lík! Hún er alveg án efa, mín skoðun fallegasta svarta kona í heimi! Röddin hennar er svo spes, stílinn hennar er mjög spes og lögin sem hún semur meika svo mikið sense og eru bara ógeðslega grípandi og góð og éggætihaldiðáframendalaust :)
Hún syngur líka jafn vel live og á plötunum skiljiði, hún er ekki eitthvað fake ass bitch að mæma og sýna á sér rasskoruna! Hún er real!

En hvað varð um hana ? Gellan var bara í blóma ferils síns, þegar hún varð ólétt held ég, tók sér pásu og það hefur varla heyrst i henni síðan! Ég er soldið sár.. Reyndar eru Fugees að koma saman aftur og þá verður hún auðvitað þar með! Hlakka til!!

En vá er að fara að byrja í nýrri vinnu, hlakka til!! Ætla að vera öfga dugleg að vinna svo ég geti eignast pening og borgað skuldir og kannski svo loksins gert eitthvað geggjað fyrir sjálfa mig :)
Svo er ég líka að fara að flytja út að heiman, frá mömmu þá.. Ég er nú nánast flutt út nú þegar, er varla hér.. En það er líka vegna þess að það er einfaldlega ekki pláss fyrir mig lengur á mínu eigin heimili.. Það er bara svo einfalt.

En svona í lokin langar mig að deila: http://youtube.com/watch?v=iwJ3u2wk0Ko

Shit hvað gellan syngur veeel!! 0_0

Vala Dögg Sigurđardóttir
2 athugasemdir

hvađ svo

26. júlí 2007 klukkan 13:07
Dísöööös! Eruði að grínast með veðurblíðuna sem við höfum fengið að njóta síðustu daga! Mjeoow! Þetta er bara einsog að búa í einhverju framandi landi..
Þetta er samt voða skrítið því að eina mínutuna er sko, alveg glampandi sól og gott veður, svo allt í einu kemur bara HELLIdemba.. Einsog í monsúntímabili!! Ég er alltaf að segja það, það er að koma heimsendir eða eitthvað. Þessi gróðurhúsaáhrif eða ég man ekki hvað það heitir, það sem er alltaf verið að tala um ?, þau eru að valda þessum veðurbreytingum, og bráðum verður öll jörðin bara vatn.. It's true! We're all gonna die!!

Nei djók, ég veit kannski ekki neitt hvað ég er að tala um.. En ég veit eitt,

VERSLÓ er þar-næstu helgi!! Glottandi
Og planið er að fara á Sigló, og svo kannski keyra þaðan á Neskaupstað, eða Akureyri.. Eða eitthvað skemmtilegt.
En það lítur út fyrir að ég fari bara ein, eða án Alla því hann var að byrja í nýrri vinnu, og fær sennilega ekki frí! Sem sökkar soldið mikið.. Gráta

En ég ætla samt þá allavena að kíkka á Sigló, og fara að hitta krakkana sem voru með mér í bekk, detta í það með þeim sem ætluðu "aldrei að drekka" haha..

Hmm já annars hef eg ekki frá mörgu að segja í bili, er að dunda mér í því að leita mér af vinnu, er atvinnulaus... aftur. bÖ
Vala Dögg Sigurđardóttir
2 athugasemdir

Ný Fćrsla

23. maí 2007 klukkan 20:16
Vá ég hef verið valin ömurlegasti bloggari HEIMS! Sorry.. Ég er búin að vera svo vangefið upptekin af sjálfri mér!! Shit ég hata þegar maður bara gleymir sér í lífinu og gerir ekki neitt en heldur að maður sé að gera ógeðslega mikið.. Það er ég búin að vera að gera, var að átta mig á því.. Vinn og sef.. Og er með Alla inn á milli. Þetta er ööömurlegt! Hvernig væri að fara að gera eitthvað! Hvernig væri...

En spurningin er bara hvað ? Þúst.. Sumir segja að aðrir eigi ekkert líf.. En hvað er að "eiga sér líf" Meina.. Lífið er bara "Vinna - sofa" Og svo bara raðar þú hlutum þar inn á milli sem greinilega gera þetta "líf".. sem allir eru að tala um. Svo ég held að þegar á hlutinn er litið að þá eiga allir sér líf, bara mis uppá-komu mikið.. Hehe ?
Ég allavena er mjög mikið að spá í þessu.. Ég þarf að vera duglegri að rækta mitt "líf" :)
Hehe..

Allavena er ég dugleg að vinna, það er þó eitthvað.. Tala af sér

En mig langar svo til Siglufjarðar! Er að deyja :( Ég sakna svo mikið sumarsins á Sigló, svo mikill fýlingur eitthvað, og allt fólkið.. Vá. Ég kem bráðum!!
En á meðan þá ætla ég bara að sitja hér í fúlu og gráu Reykjavík og mygla í mínu súra lífi...

                    valaD - ógeðslega súra
Vala Dögg Sigurđardóttir
6 athugasemdir

mmm

14. maí 2007 klukkan 12:35
Jájá

Sumarið ER komið. Það er allt orðið grænt úti, sólin skín alveg til 9 og 10 á kvöldin, sem hefur þó sína galla. Ég var búin að gleyma hvað sumarið er björt árstíð.. Og þá á ég auðvitað við kvöldin. Það er svo gott að sofa í dimmunni, en núna rétt nær maður henni milli 2-3 á nóttunni, ef það er svo gott. Ég sakna myrkusins :(

En ég hef annars frá fáu að segja, er bara búin að vera að hangsa og gera nákvæmlega eeeekkert síðustu daga. Nema vinna og vera með Alla :*
Sjöbba kom nú samt í bæinn um helgina, það var gaman.. En við vorum bara í leti-gírnum og helgin var bara eitt feitt tjill. Það er ágætt líka :)

En ég ætla að skella mér í ljós þó svo að það gæti ekki verið betri sumarblíða núna, það er bara ekkert það heitt. Kannski 11 gráður..

                          valaD
Vala Dögg Sigurđardóttir
2 athugasemdir

Jibbíjeij!

02. maí 2007 klukkan 13:05
Je je je .. Sorry bloggleysið síðustu daga, ég er búin að vera annað hvort löt, upptekin eða lasin! U can pick!
Er bara búin að vera lasin síðan á laugardag.. Suckar feitt. Er með alveg fáránlegt kvef og hálsbólgu, hnerrandi á mínutu fresti ! Helvítis :( En þessu fer að ljúka, er að fara til læknis á eftir, svo annað hvort fæ ég einhverja góða útskýringu á þessu eða einhver lyf.. Ég vona bara bæði. Ég er náttla með frjókorna ofnmæmi, hélt það væri fyrst það.. En svo byrjaði eg að fá svona ógeðslegan hósta og það fylgir ekki ofnæminu.

En vá hafiði eitthvað fylgst með fréttum.. Ég vorkenni svo þessum mönnum sem eiga að fá heimili á Njálsgötu hérna i Reykjavík. Íbúar þessara götu og í grennd við hana eru bara á móti að fá þetta heimili þangað, eða athvarf öllu heldur.. Segjandi að það hafi slæm áhrif á hverfið og börnin séu í hættu og eitthvað ! Mesta BULL sem ég hef heyrt!!
Halló, fyrir þá sem vita það ekki að þá er Njálsgatan í HJARTA Reykjavíkur, 101 skiluru, og það er nú alveg nóg af hlutum þarna sem skemma fyrir.. Fyrir. Þið fattið..
Svo eru þau að segja að allir verðandi íbúar þessara athvarfs sé í neyslu.. Jájá, það má vel vera, en þeim dettur ekki í hug að þessi menn séu kannski að reyna að breyta lífi sínu til hins betra, langar ekkert að vera í óreglu og ólifnaði lengur og séu að reyna að koma lífinu sínu upp aftur. Helvítis ógeðslega þröngsýna fordómafulla PAKK! Vá ég verð oft svo reið bara þúst... fyrir hönd þeirra sem minna mega sín.
Ég sé mig alltaf fyrir mér á svona ræðupúlti niðri bæ á 17. Júní að skamma alla sem mega eiga það .. Hehehe :)

Hvernig væru bara ef fólk setti sig i spor annara og hugsaði málið út frá þeim grundvelli... Ég ætti að fara á þing, Vala Dögg.. Fyrsti kvenn-forseti Íslands.
Hurray!!

En já, alla hlakkar til.. Það er komin Maí, orlofsmánuðurinn góði.
Ég segi bara njóttu þess, og verið bless ;)

            valaD
Vala Dögg Sigurđardóttir
2 athugasemdir

eyh

26. apríl 2007 klukkan 15:49
Vinir já... Vinir vaxa ekki á trjám. Í dag á ég ekki marga vini, og þeir sem ég kýs ennþá að tala við veit ég að eru, og eru alvöru vinir. Það er betra að eiga fáa vini en falska.

"Sannur vinur er vinur einsog þú" .. Ég er auðvitað góður vinur :D

Oh já, annars segi ég voða fátt.. Gengur bara vel hjá mér, einsog alltaf auðvitað. Eða einsog uppá síðkastið ætti ég frekar að segja hehe.. Lífið var frekar skítt hjá mér, en ekki núna.. No no no! Ég óska bara öllum hins besta, ég hef voða fátt að segja núna.. En ég var að uppgötva eitt geggjað lag ... Og með Rihanna, af öllum artistum! Já, maður er svona að reyna að víkka tónlistarsmekkin þar sem að allt sem ég hlustaði á var frekar neyslutengd, en ég sleppi ekki house-inu og því.. NO WAY!


When the sun shines
We’ll shine together
Told you I'll be here forever
Said I'll always be your friend
Took an oath, Imma stick it out 'till the end
Now that it's raining more than ever
Know that we still have each other
You can stand under my Umbrella
You can stand under my Umbrella

Þið þekkið þetta lag.. er það ekki? :)

Það eru að koma mánaðarmót!! Og PLÚS, það er fokkins Maí! Það vita allir á Íslandi með viti hvað gerist í  Maí... ORLOF! :D :D
Ég fæ samt ekki neitt öfga mikið orlof, ég fæ hinsvegar eitthvað rúmlega 20 daga borgaða í sumarfrí ^^ það er helvíti næs.. En ég fæ já, eftirvinnuna (sem er eiginlega yfirvinnan mín) borgaða í orlof, svo ég ætti að fá eitthvað.. Vúhú. Og þá er bara spurning.. Hvort ætti ég að splæsa á mig línuskautum eða hjóli ? Mig langar ógeðslega í bæði! Ég get ekki ákveðið mig.. Ég eeelska að línuskauta, og það var bara án efa það skemmtilegasta sem ég geri, og það er mjög góð hreyfing. En þú kemst ALLT á hjóli og með aðeins minni fyrirhöfn.. Svo ég veit ekki :o Ég ætlast til þess að þið kæru blogglesendur, hjálpið mér að ákveða... Og hey, ég sé alveg töluna á hvað margir koma á bloggið mitt, samt eru alltaf bara 2-3 comment..

I can seeee you! ^^

                       valaD - sátt
Vala Dögg Sigurđardóttir
7 athugasemdir

VtođeAtođeLtođeA

23. apríl 2007 klukkan 13:43
Vaaaalaa! Það er ÉG. Djók..
Ég fór á öfga skemmtilega svona, "get together" i gær, á vegum SÁÁ, eða Ungs fólks í Sáá, það var roooooosa gaman! Snúran 2007.
Fyrst voru svona stand up gaurar, þar á meðal fyndnasti maður Íslands 2007, Þórhallur? Eða eitthvað.. Sonur Ladda. Og JÁ, hann er svo fyndin.. Á ekki langt að sækja það! Svo er líka bara svo fyndið hvernig hann talar hahaha.. Ég grenjaði næstum úr hlátri. Og þeir sem þekkja mig vita að ég er með soldið svona asnalegan hlátur stundum og mér fannst oft einsog ég væri sú eina sem væri að hlæja í salnum hehe...
 
Og á eftir þeim voru gaurar með svona beatbox, það var alveg ótrulega töff! Hvernig er hægt að gera svona hljóð ?! Ég næ því ekki sko... Stundum var þetta bara einsog að heyra alvöru lag eða eitthvað.. En á eftir þeim kom einhver gæji sem gítar sem ég veit ekki hver er, en vá hann söng rosalega vel... Það var fínt. Svona kósý kaffihúsa stemning sem varð í húsinu hehe.. Og svo á eftir honum var Einar Ágúst auðvitað, ég digga þann gaur samt ekki alveg þannig ég og Sjöfn yfirgáfum þá bara pleisið, enda dauðþreyttar eftir skemmtilegan en langa helgi! Fórum meðal annars út að labba í Öskjuhlíðinni i gær, rosa fjör.. Ég fór og sýndi henni svona virki einhver, svona gryfjur með stigum ofan  í og uppur aftur.. Svaka töff.. Fórum líka þar á undan í Perluna að kaupa ís og eitthvað, ætluðum að fara og skoða i kíkjunum á útsýnispallinum, en svo sést eiginlega ekkert í þessu... Skil ekki alveg tilgangin með þessu?

En svo þegar við vorum að keyra i Öskjuhlíðinni, þá sáum við svona BMW, svona sko station týpuna eða eitthvað, og þið vitið að í Öskjuhlíðinni er búið að setja allstaðar í öll útskot svona stóra steina svo fólk geti ekki parkerað þar og gert eitthvað óviðeigandi, eða keyrt göngustígana.. En hvað um það, á einum svoleiðis stað þar sem þetta HJÚDS grjót var, var bara þessi BMW buin að keyra UPPÁ steininn! Og gæjinn, eða gellan sem var að keyra bílinn hefur verið á engri smá ferð því að sko bílinn var alveg uppi á grjótinu, og grjótið var buið að færast alveg nokkra leið, og loftpúðarnir hefðu sprungið líka sko, og framrúðan var eitthvað i maski.. En spáið i þessu! Að þúst... Ég næ þessu ekki. Hversu ruglað er fólk orðið ? ... Svo var þetta líka bíll af bílasölu, því það var svona "til sölu" miði inni honum, sem hengur alltaf á speglunum á bílunum á sölunni.. Svo annað hvort var þetta prufu akstur sem fór virkilega ílla, eða bílþjófnaður, sem fór VIRKILEGA ílla hahaha :D

En ég er buin með 4. spor, var ég kannski búin að segja það ? Hehe
Þá er það bara 5,6,7,8,9,10,11 og 12 eftir ! HEHE... styttist i þetta :D

En ég er farin, Sjöfn fer i dag og eg ætla að fara og kveðja hana...

                   valaD
Vala Dögg Sigurđardóttir
2 athugasemdir

Hćhć og halló

21. apríl 2007 klukkan 02:46
Ég er svo ánægð! Ég er búin að fá að upplifa svo marga hluti í dag og síðustu daga sem ég hefði ekki getað meðan ég var i neyslu.. Þetta er rosalega skrítið.
Ég er bara svo kát, og ofsakát og eitthvað hamingjusöm.. Ég hélt ég myndi aldrei nota þetta orð á minni ævi yfir sjálfa mig. Ég er að koma hérna heim af fundi, og ég svíf bara á bleiku skýji! Ef ég hefði vitað, að svona æðislegt skap gæti maður fengið frítt þá hefði ég orðið edrú mikið fyrr! Ég vildi að ég gæti lýst þessu fyrir ykkur en ég held bara að það fái engi orð því líst hvað lífið er geggjað :) Ég held að allir verði bara að upplifa það fyrir sjálft sig..

Þessi dagur er búin að vera geðveikt frábær, vaknaði snemma og fór til Sjöbbu, fengum okkur að snæða og skelltum okkur svo í Kringluna, og Þóra kom með.. Vorum þar í smá tíma, keyptum okkur meðal annars þennan viðbjóðslega góða ís! mmmm *slef*
Kíktum svo aðeins heim i smá tjill, en þá kom Sjöfn með þá snilldar hugmynd að lita á henni hárið.. Og í leiðinni datt mér í hug að versla í pizzu og meika hana heima hjá Gústa þar sem grillmaturinn sem við fengum hjá honum í gær var SVO góður að ég varð með einhverju móti að endurgjalda greiðan.. Og það var rosa fínt. Svo fórum við i keilu og pool í Öskjuhlíðina, það var ööööfga gaman. Smá rematch, ég VISSI að þetta væri bara byrjunar heppni hjá þér Sjöbba þar sem ég vann í þetta skiptið :P hehehe
Svo skelltum við okkur á miðnætur-fund og ég gæti ekki vitað betri leið til að enda svona frábæran dag.. Takk fyrir mig elskan mín :*

Ég vildi að ég gæti ekki verið svona væmin, en ég bara ræð ekki við það..
Ég elska lífið! :D
Vala Dögg Sigurđardóttir
1 athugasemd